Posted: February 27th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: audible, audiobooks, Books, nightstand | No Comments »
Ég henti upp síðunni “My Nightstand” þar sem ég lista upp þær bækur sem ég er að lesa, er að fara að lesa og þær sem ég er nýbúinn að glugga mig í gegnum. Ég hef iPodinn minn ávalt við höndina með ferskum bókum frá Audible sem Hörður Már benti mér á um daginn. Ef þig langar að skoða Audible nánar skráðu þig þá fyrir tímabundnum aðgangi í gegnum þennan link en þá færðu “1 credit” í inneign sem þú getur notað til að sækja nánast hvaða bók sem er. Mundu bara að munurinn á Unbridged og Abridged er að Abridged er styttri útgáfan af bókinni.
Posted: February 24th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | No Comments »
Nú er ég aldeilis búinn að taka mig á, safnaði saman flestum myndunum sem við höfum tekið frá því í október og smellt þeim á netið. Ég stofnaði albúm á Picasaweb sem er vara frá Google, sótti lítið upload forrit frá þeim og hófst handa. Þetta er allt saman mjög auðvelt í notkun og nethraðinn er mjög fínn, annað en á myndaalbúminu sem ég hýsi í San Fran. Ég stefni nú að því að bæta við albúmum jafn óðum og smella einu og einu gömlu með þegar ég gref þau upp. Myndaalbúmin má nálgast á PAGES – PHOTOS.
Posted: February 24th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | No Comments »
Ég er búinn að ná ágætum tökum á möguleikum WordPress og ég verð bara að gefa þeim sem koma að þessu tóli 9.0 því þetta er alveg fanta sniðugt! Ég hef reyndar ekki farið útí það að skoða þau “widget” sem hægt er að bæta við síðurnar, en það fer svoldið eftir því “template” eða útliti sem maður er að nota. Eitt hef ég þó tekið eftir er að grunn útgáfan af WordPress kemur ekki með “spam” vörn á athugasemdir færslna þ.a. ég hef þau bara ekki í gangi því annars fyllist allt af drasli.
Posted: February 22nd, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: find:hardcore, leit, leitarvél, Linux, search engine | No Comments »
Jæja þá er ég búinn að sjóða saman MJÖG einfalda leitarvél fyrir þá linux unnendur sem muna ekki lengur hvar hitt og þetta er á vélinni sinni. Ég stefni á það mjög fljótlega að bæta við nokkrum einföldum en mjög svo þægilegum möguleikum við. Það má lesa aðeins meira og jafnvel sækja eintak af leitarvélinni hérna í PAGES – find:hardcore
Recent Comments