Ari. age 30. one girlfriend. one boy. blue eyes. icelandic. live in denmark. school. football. weight lifting. mac & linux. book worm. cooking. coding. creating. thinking. doing.

Náttborðið – Empire Trilogy

Posted: March 27th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Books | Tags: , , , | No Comments »

Ég var rétt í þessu að uppfæra náttborðið mitt. Um páskana gerði örlítið hlé á hlustun Konungsbókar til að ljúka við Mistress of the Empire sem er síðasta bókin í Empire Trilogy seríunni. Empire serían var betri en ég átti von á, þetta er einskonar stríðssaga með sci-fi ívafi er gerist í heimi líkum okkar miðöldum þar sem barist var með sverði og spjóti að vopni og heiðurinn skipti öllu og fær lesandinn að kynnast þónokkurri pólitík, laumupúkaspili og valdabaráttu stríðandi fylkinga í bland við líflegar lýsingar af bardögum í návígi. Sem sagt allt það sem þarf til að prýða góða strákabók :)

 

 Konungsbók

 

Konungsbók var hinsvegar þónokkur vonbrigði en ég hlustaði á hana á tveimur dögum yfir páskana. Mér fannst vanta töluvert uppá persónusköpunina og samræður aðalpersóna eru með lakara móti en það sem hélt mér gangandi eða hlustandi öllu heldur voru skemmtilegar tengingar við fortíð íslendinga í gegnum handritin og sögusvið bókarinnar í Kaupmannahöfn en það voru þónokkrir staðir og götur nefndar sem ég þekkti ekki og ætla ég mér að bæta úr því við fyrsta tækifæri og gerði ég upptæka bókina hans Guðlaugs Arasonar um merka staði í Kaupmannahöfn sem ég rakst á í heimboði um daginn. 

 

Þessi hljóðbók var gefin út af Blindrafélagi Íslands sem er frábært framtak en þó er ekki betur vandað til en svo að sögumaðurinn virtist alla bókina á enda vera að reyna að kyngja hesti með viðeigandi búkhlóðum í lok hverrar málsgreinar. Ég var orðinn mjög svo pirraður eins og gefur að skilja. 

 


T-2 days

Posted: March 27th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: , , , , | No Comments »

Það er hálf ótrúlegt að hugsa til þess að ég á bara 2 daga eftir í vinnunni en ég held heim á leið 1. apríl næstkomandi. Ég verð bara einn af þessum aumingjum með hor sem lifa á danska ríkinu, lyggja með tærnar uppí loft og sötra öl í Fælleparken á milli þess sem ég smyr á mig sólarolíu og snakka við mann og annan. Þér er velkomið að kíkja við og fá þér einn volgan.

 

 Hamborgari

 

Lítið annað hefur verið í gangi því ég lagðist í 3 sólarhringa hausverk fyrir páskana en þar fyrir utan er maður upptekinn við að heimsækja vini og vandamenn eins og gengur og gerist í þessum stuttu heimsóknum. Ég vonast nú til að hitta nokkra sem ég hef skilið útundan um á föstudaginn í bænum, annars fer laugardagurinn í árshátíð Calidris sem haldin er í Hvalfirði. Það verður skemmtilegt að vita hvort ég verði jafn drukkinn og á síðasta starfsmanna djammi þar sem ég var uppvís að hamborgarakasti í andlit og hausagötun samstarfsmanna, ég ætla að hafa vaðið fyrir neðan mig og segja fyrirfram, “Sorry!”


Aftur í skóla

Posted: March 15th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: , , , , , | No Comments »

Þá er komið að því að drífa sig aftur í nám, við Malla fórum uppí DTU í gær að skila inn umsókninni minni í DTU Management Engineering deildina en það er pínku furðuleg tilfinning sem fylgir því að byrja í nýjum skóla, mér leið eins og litlum skólastrák sem þekkir engann en mér til mikillar gleði sá nokkra bjórkrana í kaffiteríunni þ.a. ég held að þetta bjargist allt. En fyrst er að bíða eftir því að Ara slux verði hleypt inn í námið. Ég reyndar  líka að sækja um dönskunámskeið í tungumálaskóla í Fredriksberg og byrja þar  um leið og ég kem frá Íslandi, en við komum til Íslands á morgun. Malla fer reyndar aftur 26. en ég verð eitthvað áfram að skila af mér verkefnum í vinnunni því ég er að hætta 1. apríl, en þá verð ég búinn að vinna hjá Calidris í tæplega 3 ár, það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Ég er búinn að vera að hugsa til baka um öll þau verkefni sem ég hef verið að vinna fyrir fyrirtækið víðsvegar um heiminn og er bara ótrúlega sáttur með það sem safnast hefur í reynslu bankann.

 

Við hlökkum mikið til að koma heim en þetta verður sjálfsagt ekkert frí því að maður er alltaf útum allt að gera allt sem þarf að gera og hitta alla áður en tíminn rennur út 


uTorrent… á linux

Posted: March 6th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: , , , | No Comments »

Alveg frá því að beta útgáfa uTorrent kom út haustið 2005 þá hefur ekki fundist bittorrent forrit sem kemst nánda nærri því í hraða, áræðanleika né fídusum. Eins og með svo margt annað sniðugt þá er uTorrent einungis “native” á windows stýrikerfi, en þó má keyra það undir Wine(emulation) á linux sem virkar alveg merkilega vel. Þetta er svosum ekkert nýtt fyrir þá sem fylgjast vel með en það sem ég var að uppgötva er að nýjasti fídusinn þeirra, sem er vefviðmót að client-num sjálfum (WEBUI) virkar nú einnig á linux. 

 

Þetta kemur sér einkar vel fyrir þá sem eru að keyra bittorrent á linux server og vilja ná betri og þægilegri stjórn á torrent-unum sínum. Hér má nálgast skjáskot af vefviðmótinu sem keyrir á linux server. Hér að neðan má svo sjá einfaldar leiðbeiningar til að koma vefviðmótinu upp, en gert er ráð fyrir að utorrent sé þegar keyrandi undir Wine.

 

  • Sækja WEBUI pakkann hér
  • Afþjappa .rar pakkann og færa webui.zip á eftirfarandi slóð á linux servernum 
  • /home/<user>/.wine/drive_c/windows/profiles/<user>/Application Data/uTorrent 
  • Muna að það á ekki að afþjappa webui.zip !
  • Í uTorrent clientnum sjálfum þarf að virkja Webui, stilla aðgangsorð og setja port
  • Tengjast webui í gegnum http://youip:yourport/gui