Ari. age 30. one girlfriend. one boy. blue eyes. icelandic. live in denmark. school. football. weight lifting. mac & linux. book worm. cooking. coding. creating. thinking. doing.

Vika 17

Posted: April 27th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Fitness | Tags: , , , | No Comments »

Þá er komið að því að birta fyrstu niðurstöður í F-Átakinu, næsta mæling mun hinsvegar ráða úrslitum um fyrsta Mánaðarmeistarann og er mikil spenna í mönnum. Það má glöggt sjá að síðasta helgi fór einkar illa í mig og Sverri en Ingi og Siggi virðast hafa eignast steravini. 

 

 

Við ákváðum strákarnir á síðasta fundi að hafa refsingar í formi fjárútláts fyrir neðstu tvö sætin í hverjum mánuði, eru Sverrir og Helgi því í botnbaráttunni eins og er en allt getur gerst eins og stökk Sigga og Inga sýna og sanna. Ég er búinn að vera semi duglegur og vonast til þess að lækka ekki í næstu mælingu því ef sem horfir þá verð ég á botninum!

 

 


Ojj x2

Posted: April 24th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: , , , | No Comments »

Jæja já, ég var að fletta mbl.is og rakst þar á athyglisverða grein um brot í Hollenska fótboltanum sem átti sér stað árið 2004 en nýverið var dæmt í því fyrir opinberum dómstólum, tæklaranum í óhag eins og gefur að skilja. Ég hef oft velt því fyrir mér hvers vegna brot eins og þessi, sem eru augljóslega eru líkamsárásir, séu ekki oftar kærð. Hérna má sjá myndband af umræddu broti. 

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video

Allt í lagi, brotið er viðbjóður en það sem virkilega sló mig er hreimur hollenskunar, algjör sæbjóður !


Syndir helgarinnar

Posted: April 22nd, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: , , , | No Comments »

Ég syndgaði í F-Átaks keppninni um helgina, tók bjórþamb og svínarif á föstudaginn í Lundi og þriggjarétta máltíð og bjórþamb á árshátíð íslendingafélagsins í DTU á laugardaginn. Á sunnudaginn flatmagaði ég svo í sólinni í Rosenborg have. Ég reikna því fastlega með því að fá mínus stig fyrir þessa viku í F-Átakinu! Þetta er ekki allt því einhversstaðar þarna inn á milli var McTasty + franskar, BurgerKing kjúklingaborgari með mæjónesi og körlífræs og sveitt pizza, ekki nóg með þetta yndislega ógeð hafi smellt sér á sekkinn minn þá dagdreymir mig um bíóferð bara svo ég geti fengið mér ROCKY! (sjá skýringamynd)

 

rocky 

 

Mér myndi þykja vænt um það ef allir myndu nú sýna mér stuðning með að senda á mig SMS í símann minn +45 31700733 með textanum: “U R FAT FUCK” og/eða benda á mig og flissa þegar þið sjáið mig bregða fyrir.

 

Takk takk! 

 

Ég henti inn myndum á myndasíðuna af atburðum helgarinnar.

 

 


F-Átak

Posted: April 22nd, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Fitness | Tags: , , , , , | No Comments »

Þá er ein önnur fitness keppnin komin af stað, við Helgi hættum nefnilega í keppninni sem við vorum í því ekkert gerðist. Við ákváðum því að breyta reglunum og bæta við þáttakendum svona til að hafa meira aðhald. Við erum nú orðnir 6 talsins og keppumst við um að lækka fitu og auka massa sem umreiknað er í stig skv. eftirfarandi formlúlu:

  • F – Þyngd * Fituprósenta (Fita)
  • M – Þyngd * (1 – Fituprósenta) (Massi)
  • dF – Breyting á F milli mælinga
  • dM – Breyting á M milli mælinga 
  • Stig = 0.3 * dF + 0.7 * dM

Keppnin stendur í 6 mánuði og í hverjum þeirra keppum við um Mánaðarmeistarann skv. formúlunni en einnig er samanlögð keppni yfir allt tímabilið, en mælingar eru teknar vikulega þ.a. keppendurnir sjái hvernig þeir standa.

 

Mér finnst mjög gaman að fylgjast með árangrinum eða skorti af árangri á grafi þ.a. ég hugsa að ég fari að birta hér niðurstöður í keppninni þó nafnlausar :)