Ari. age 30. one girlfriend. one boy. blue eyes. icelandic. live in denmark. school. football. weight lifting. mac & linux. book worm. cooking. coding. creating. thinking. doing.

Ferðalangur og Facebook

Posted: June 27th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: , , | 5 Comments »

Fyrir stuttu bjó ég til prófíl á Facebook og var eftirvæntingin í hámarki, ég bjóst við einhverju “magic”, því bókstaflega allir eru með prófíl á Facebook og enginn lengur með blog. Ég byrjaði á því að bæta við fullt af vinum og sendi nokkra pósta og skrifaði á nokkra veggi og þá byrjaði baráttan við spam-ið og óþjála uppsetningu á Facebook. Mér finnst mjög erfitt að finna hlutina sem ég er að leita að því allt viðist vera útum allt og inn á milli eru auglýsingar og boð um notkun á asnalegum forritum. Öll þessi ringulreið er mér eiginlega um megn og kíki ég ekki inn lengur nema að ég hafi fengið skilaboð.

Ég verð þó að viðurkenna að innan um öll þessi boð um forrit þá rakst ég á eitt helvíti sniðugt sem opnaði augu mín fyrir því að ég er tiltölulega slappur ferðalangur. Í gær, nefnilega bætt ég við “Cities I have visited” og sá svart á hvítu hvað er búið og hvað er eftir.

Ég eiginlega hálf skammast mín fyrir Evrópukortið mitt, verandi evrópubúi, en ég hef ákveðið að líta á þetta sem áskorun, í fyrsta lagi þarf ég að taka góðan túr um Evrópu áður en farið verður til Suður-Ameríku / Afríku og þar á eftir Asíu / Ástralíu.

Þeir sem eru til í ferðalag um Evrópu eða að passa lítinn grís að ári liðnu eru beðnir um að gefa sig fram :)


Flutningur & bílar

Posted: June 27th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: , , , , | No Comments »

Í gær var Rafnar að flytja, enn og aftur, að þessu sinni dótið í geymslu á Østerbro og sjálfan sig í sófann til okkar Möllu á meðan hann finnur íbúð handa sér og Sólveigu. Til liðs við okkur fengum við liðþjálfann til að halda aga á okkur og lík (Lej et Lig) til að flytja húsgögnin og dótið í. Það gékk þó reyndar frekar hægt að flytja sjálfsagt vegna fjölda stoppa á Massimo’s Italiens Pizzeria á Amagerbro, sem áður en lengra haldið býr til bestu samlokur í Kaupmannahöfn og fínar pizzur. Flutningurinn gékk ekki slysalaust fyrir sig, ég braut einhvern lampa skerm en Bjarke braut nokkra diska, sullaði soya sósu útum allt og missti glútusinn sinn á Ikea hillu.

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video

Þrátt fyrir allt tókst okkur ætlunarverkið í tveimur ferðum.

Heimilishaldið hefur strax tekið breytingum því mikið ber nú á appelsínu-, epla, hind- og jarðaberjasafa,  kóki og öðru eins kruðeríi, eins og kaffi og kranavatn sé ekki nóg á þessum hörðu tímum þegar maður á bara íslenska peninga og býr erlendis. Nöldur hefur einnig færst í aukana og notkun á setningunni: “Nei, gerð þú það, þú ert hvort sem er ekki að gera neitt”, sem er vísun til þess að dönskuskólinn kláraðist í gær og ég er ekki að vinna þessa dagana. Einnig hefur heyrst: “Notar Ari aldrei Cilit Bang ofan á ísskápinn?” Nöldrið má helst rekja til fjölgunnar í húshaldinu (a.k.a. Rafnar).

Ég var ekki sá eini sem var að klára skólann, Malla var líka rétt í þessu að klára sitt síðasta próf, 27. júní! Til hamingju Malla, en ég vill geta þess að Rafnar á ennþá eftir að skila verkefninu sínu.

Við tókum nokkrar myndir af flutningunum en þó aðallega af skondnum bílum sem urðu á vegi okkar, þar á meðal Austin-Mini með rallý sætum og eeeeld gamal Morris.


MacFuse to the rescue!

Posted: June 20th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Tech | Tags: , , , | 3 Comments »

I recently bumped into MacFuse ( most likely through andri.dk ) which is a marvelous program ported from linux to mac. What it does, for me at least, is mounting a linux drive onto my mac using ssh. Now, this is just fabulous because it enables me to locally edit files which are seamlessly uploaded to a remote server via very secure protocol; ssh. 

The thing is I’ve been looking for suitable code editors for some time now (Mac) and one of my requirements is that the editor has remote-save capability which is most often not supported by code editors, except for BBedit (ftp) which I’ve been using lately. Now being able to work with local files, which are uploaded behind the scenes, I can use whatever editor I like, remote-save capability or not. 

It’s relatively simple to get MacFuse-sshfs up and running, and there is how:

  • Download MacFuse & SSHFS
  • Install MacFuse and reboot
  • Install SSHFS
  •  Open Terminal and .. 
    • sudo su - # enter root mode
    • ln -s /Applications/sshfs.app/Contents/Resources/sshfs-static /usr/bin/sshfs 
    • exit # enter your user again
    • mkdir /some/mount/point/on/your/mac # or use one that already exists 
    • sshfs user@host:/linux/directory /some/mount/point/on/your/mac -oreconnect,volname=somename
  •  

To get rid of the mount just:

  • umount /some/mount/point/on/your/mac


Vika 24

Posted: June 16th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Fitness | Tags: , , , | 1 Comment »

Ó nei! Það er allt í bakkgír. Ég er orðinn langþreyttur á æfinga prógramminu mínu, æfingastöðinni og á því að lyfta einn og niðurstöðurnar leyna sér ekki. Reyndar var við þessu að búast en ég er ekki búinn að gera neinar ráðastafanir fyrr en núna, er að vinna í að búa mér til nokkur æfingar prógrömm og ætla að skipta á milli þeirra með reglulegu millibili. Svo af því að við Malla ætlum heim til íslands í mánuð er ég að reyna að koma mér inn í Boot Camp svo ég missi ekki allt niðrum mig. Mælingarnar hér eru reyndar viku gamlar því það gékk frekar illa að innheimta mælingarnar, svosum ekki skrítið þegar EM er í fullum gangi.

Mig langar reyndar að deila með ykkur “pepp” myndinni sem ég sendi á strákana í síðustu viku.