Ari. age 30. one girlfriend. one boy. blue eyes. icelandic. live in denmark. school. football. weight lifting. mac & linux. book worm. cooking. coding. creating. thinking. doing.

Sjósund

Posted: July 30th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: , , | 2 Comments »

Á sunnudagsmorguninn vaknaði ég við símhringingu, opnaði augun og mundi eftir því að ég hafi lofað Bjössa að fara í sjósund kl 11, ég teygði mig í símann hamraði inn SMS og sagðist ekki geta komið vegna þynnku enda drakk ég hressilega í brúðkaupinu kvöldið áður. Ég var alveg í spreng, fór frammúr, stóð kyrr í smástund og beið eftir að þynnkutilfinningin heltist yfir mig, en viti menn ekkert gerðist !! Ég hringdi með það sama í Bjössa og bað hann um að kippa mér upp í leiðinni.

Ég klippti hér saman smá myndstúf af kveininu í mér og svo eru nokkrar myndir í albúminu. Ég verð að viðurkenna það að það er nokkuð gaman að því að fara í sjóinn en að sjálfsögðu er alltaf erfiðast fyrst þegar maður er að kólna, en svo getur maður dúllað sér í sjónnum eins og hann væri 25°.

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video


Brúðkaup Hjalta & Ingunnar

Posted: July 29th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: , , , , , , , | 3 Comments »

Ómæ, brúðkaupið hjá þeim hjúum var vægast sagt æðislegt. Athöfnin fór fram á Þingvöllum, í kirkjunni litlu og þjónaði Séra Pálmi til altaris og ég verð að hafa orð á því að maðurinn er snillingur. Veislan fór svo fram í Valhöll þar sem djammað var frameftir nóttu, það var alveg geeeggjað gaman. Mig langar til að óska Hjalta og Ingunni enn og aftur til hamingju með hvort annað og frábæran dag!

Í veislunni sýndum við félagarnir myndband úr steggjuninni hans Hjalta, en Hjalti bjallaði í Adolf Inga og leitaði svara við neikvæðum kommentum íþróttafréttamanna í hans garð í gegnum tíðina, eins og áður hefur komið fram. Ég átti aðeins við myndbandið þ.a. það sýnir einungis samtal þeirra kumpána.

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video

Að sjálfsögðu má svo finna nokkrar myndir af atburðinum a myndasíðunni.


Recommended Links

Posted: July 29th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: | No Comments »


Steggjun

Posted: July 28th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: , , | No Comments »

Ljúflingurinn og kraftatröllið hann Hjalti Þór var steggjaður 12. júlí af okkur vinum hans. Við Helgi byrjuðum daginn á heiðarlegri tilraun til þess að færa honum kókópöffs í rúmið en Ingunn hafði falið lykil í blómapotti svo við kæmumst inn. Allt kom fyrir ekki, Hjalti var löngu búinn að reikna út daginn og lá í rúminu með hárkollu, búinn að fara í sturtu og baka handa okkur köku.

Við snæddum með honum morgunmat og drifum okkur svo útá flugvöll þar sem Cessna 150(155) beið okkar. Við vorum svo heppnir að flugmaðurinn var þræl fínn gaur og fékk Hjalti að taka á loft og fljúga vélinni allan tímann að frádregnum 5 sekúndum fyrir lendingu! Kallinn stóð sig með príði enda þaul vanur Flight Simulator maður. Flugið var helvíti gaman en það voru þó ekki allir sammála um það, fremstur í flokki var maginn á mér sem krafðist þess að tæma sig í klósettið (upp) hjá Nilla stuttu seinna.

Við hittum svo restina af strákunum í Ártúnsbrekkunni og fengum okkur borgara. Svo var ferðinni haldið í Sundhöllina þar sem dregin var upp Borat skýla (one size fits all) við mikla kátínu allra viðstaddra að einum frádregnum. Kallinn var samt helvíti góður og spókaði sig um og tók nokkrar dýfur af pallinum sem endaði með eldrauðum rassi.

Veðrið var leiðinlegt, þess vegna voru allir í Kringlunni, líka Hjalti og honum leist ekkert á blikuna. Hann var reyndar mjög svo heppinn og fékk að fara í górillubúning svo enginn þekkti hann. Hann reyndi að gefa sig á tal við mann og annan, leysa nokkrar þrautir sem við höfðum lagt upp fyrir hann en fullorðnir hlupu undan og krakkarnir fóru að hágráta þ.a. við ákváðum að gera eitthvað skemmtilegra.

Lazertag er sannarlega málið ef maður vill svitna, við kíktum í einn leik upp í Kópavogi og vorum alveg rennandi blautir eftir og kallaði það á afslöppun í pottinum á Hótel Loftleiðum. Tequila-ið var þegar nú var komið aðeins byrjað að rugga skrokknum á Hjalta.

Alveg endurnærðir héldum við svo heim til Nilla að Klapparstíg þar sem við fórum nú fyrst fyrir alvöru að keyra upp drykkjuna, hnoða í okkur svínakjöti og dýrka Mao formann. Það kom svo að því, augnablikinu sem ég var búinn að bíða eftir að festa á filmu allan daginn, að Hjalti hringdi nú í hann Adolf Inga vin sinn og fengi svör við þessu einelti sem hann hefur orðið fyrir á handboltavellinum í gegnum tíðina. Til að leyfa þér að vera með er hér brot af athugasemdum íþróttafréttamanna um hann Hjalta:

  • “Þvílíkt mark hjá Hjalta… stekkur reyndar ekki hátt…”
  • “Hjalti hefur komið mjög sterkur inn í seinni hálfleik…. hann er nú ekki 60 mínútna maður”
  • “Hjalti Pálmason skorar hér” “Nei það var Markús” “Það hlaut að vera”
  • “Og það er, hahaha, Hjalti Pálmason sem er hér fyrstur í hraðupphlaupi… fer reyndar ekki mjög hratt yfir”
  • “Hjalti skorar enn… Hann hefur nú verið þekktari fyrir varnarleik hingað til”
  • “Hjalti Pálmason hleypur hér inn á… hleypur kannski ekki, labbar frekar enda hokinn af reynslu. Einn af þessum gömlu reynsluboltum” (Hjalti var 24 ára á þeim tíma)
  • “Hjalti neglir honum hérna inn, þvílíkt mark…. hann hlýtur að hafa misst hann”

Um það bil 30 staupum og miklu fjöri síðar héldum við á B5 þar sem við eyddum restinni af kvöldinu, þangað til ljóska nokkur dró hann Hjalta með sér heim :)