Posted: August 22nd, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: litli hellisbúinn, malla, nafnaforrit, nöfn | No Comments »
Loksins tók ég mig nú til og skrifaði vefsíðu sem auðveldar okkur að finna nafn á litla hellisbúann okkar. Hugmyndin er þannig að þau nöfn sem maður getur hugsað sér að nota eru sett í lista en maður velur hvort nöfnin séu hugsanlega fyrsta nafn og/eða millinafn og að lokum verður til listi með öllum mögulegum nafna samsetningum sem við förum svo yfir og hendum út þeim sem okkur þykir ekki falleg.
Í fyrstu umferð tókum við út um 1000 nöfn, það er ekki mikið eftir þ.a. spennan magnast á heimilinu. En það er ekki það eina sem gerðist í vikunni, við fórum í sónar á þriðjudaginn og það er allt í himna lagi með litla kútinn og fengum við að vita að hann er stór strákur og verður líklegast 16-18 merkur við fæðingu. Ég er því hræddur um að hann passi ekki í helminginn af fötunum sem við erum búin að vera að fá og kaupa.
Kúlan á Möllu er því orðin nokkuð stór og getur maður fylgt hreyfingum litla hingað og þangað sem er alveg magnað. Ég verð líka að segja að ég á fallegustu óléttu konuna í bænum, það er eins og að vera með Heidi Klum uppá arminn því fólk getur ekki tekið augun af Möllu þegar það sér hana, hún er svo glæsileg. Ég er ekki bara að segja þetta því tengdó hefur einnig haft orð á þessu og ég er bara montinn.
Við höldum úti bumbualbúmi á myndasíðunni hérna á hægri og ef þú vilt fá að kíkja endilega sendu bara á mig línu og ég sendi þér lykilorðið um hæl.
-
-
Alltof mikið af fötum!
-
-
Vetlingarnir sem Unnur frænka prjónaði í BH
-
-
Húfan sem Malla prjónaði í BH
-
-
Vinirnir lenda oft í barnabúðarápi
-
-
Listræna Járnfrúin að störfum
-
Posted: August 19th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: bootcamp, djamm, glaumbar, indverjar, vegamót | No Comments »
Á laugardaginn síðastliðinn hittumst við nokkrir strákar heima hjá brósa í BPB (börger, póker og bæinn). Gestgjafinn hóf pókerinn á því að fara yfir húsreglurnar þar á meðal
- má ekki vera með tómt glas við borðið
- má ekki SMS-ast eða tala í síma við borðið
- ef “dealer” klúðrar gjöf – staup
- ef borðið snýst gegn ákveðnum spilara og baular – staup
- Davíð er handhafi staup-skotleyfis á Finn
Maður sá mjög fljótt í hvað stefndi, allsherjar djamm og allir einhleypir nema 2. Við byrjuðum bæjarröltið á Glaumbar en þar var BootCamp hittingur í gangi og svo var haldið á Vegamót. Það var ógeðslega gaman og þá sérstaklega að fylgjast með félögunum sem voru allir með opna buxnaklauf og með veiðarfærin úti gera atlögu að stelpuhópunum í þeim tilgangi að ná að sundra þeim og einangra bráðina.
Við hittumst svo í sundi í Seltjarnarneslaug þar sem við fórum yfir sigra kvöldsins og það sem betur hefði mátt fara og það sem meira er hvort að Indverjar sem standa eins og illa gerðir hlutir útí horni séu virkilega sexý! Málið var nefnilega að það stóðu einhverjir Indverjar þarna á dansgólfinu allt kvöldið, með engin sjáanleg veiðarfæri og fiskuðu villt, sem gengur einfaldlega ekki upp að okkar viti, en svona er þetta nú stundum …

hot indian guy
Posted: August 15th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: Árni, Auður, bumbualbúm, bumbumyndataka, drobo | No Comments »
Í síðustu viku fórum við í heimsókn til Auðar og Árna vina okkar, það er anskoti langt síðan að við hittum þau síðast og það var virkilega gaman að koma til þeirra og sjá hvernig þau eru búin að koma sér vel fyrir í Grafarholtinu.
Malla var búinn að fá Auði til að taka bumbumyndir af okkur fjölskyldunni og erum við hæst ánægð með þær, en þær má finna í nýju bumbualbúmi (ef þú veist lykilorðið), en hér að neðan má sjá nokkrar. Það má segja að Árni hafi nú endanlega sýkt mig af Drobo veirunni, en hann á x2 Drobo-a og ég verð að fara að fá mér einn.
En hvað um það, takk fyrir okkur Auður og Árni, vonandi sjáumst við í Köben eftir nokkra daga :)
Posted: August 15th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: Birkihlíð, Bjössi litli, malla, Nauthólsvík | No Comments »
Okkur er búið að dreyma um það lengi að komast austur í Birkihlíðina góðu og fórum loks um Verslunarmannahelgina. Það hefur eiginlega skapast núna hefð hjá nokkuð góðum hluta móðurættarinnar að láta sjá sig í Birkihlíð um þessa helgi og í ár var engin undantekning, við vorum hátt í 40. Tækifærið var notað til þess að grisja smá í skóginum, planta nýjum og týna út gamla bagga úr hlöðunni en þó ekki of mikið til að skemma fyrir spröngunni sem er þar inni.
Reyndar vorum við svoldið súr yfir því að fara úr geggjuðu veðri yfir í skítsæmilegt veður, en sama dag og við fórum austur láum við í sólbaði í Nauthólsvíkinni ásamt alltof mörgum öðrum.
Jafet mætti galvaskur með fjórar litboltabyssur í skottinu og nóg af skotum og hófumst við handa við að gera grunninn, þar sem Refahúsið stóð á sínum tíma, klárann sem vígasvæði. Á svæðinu eru tveir gámar, Minkahús, ýmis landbúnaðartæki, plankar og plötur, njóli, heyrúllur og síðast en ekki síst baggarnir sem við týndum út úr hlöðunni þ.a. þegar við vorum búin að djöflast þarna í tvo tíma eða svo var kominn flottasti litboltavöllur á Íslandi – án gríns.
Við unga fólkið skiptumst svo á að hlamma hvort annað niður og má segja að reynslan og sakleysið hafi haft sigur úr býtum því sigursælasta liðið samanstóð af mér sjálfum og Stefaníu frænku sem var yngsti og saklausasti þáttakandinn.
Nafni hennar Evu mætti með stóra flugdreka með sér, annan mætti betur kalla Kite, því hann má nota til að draga sig á allskonar dóti en við vorum bara að nota hann á túninu til þess að hoppa og skoppa. Ég þurfti auðvitað að fá að prufa og það leið ekki á löngu þar til að ég felldi drekann og á sama tíma kom ágætis vindkviða sem gerði mér kleyft, óviljandi, að taka svokallaðan Súperman. Ég flaug um túnið láréttur í Súperman stellingu, snérist við á bakið í miðju flugi og lenti á bakinu með viðeigandi slynnk á hálsinn og þegar ég var búinn að reka í burtu allar stjörnurnar sem sveimuðu yfir mér og ganga um skugga að tærnar heyfðust þá var þetta bara geðveikt fyndið – en ég er ennþá með hálsrýg.
Birkihlíð er ekki með stóran heitavatnstanka og í stað þess að fara út á Egilsstaði í sund drifum við okkur niðrí á með sápuna meðferðis. Það var geggjað stuð en pínku kalt til að byrja með. Svo, eins og alltaf, var brenna á Laugardagskvöldinu en við vorum búinn að fara ótal ferðir á fjórhjólinu + kerru með timbur úr skóginum og var brennan heeelvíti stór og alltaf jafn gaman að sjá hana fuðra upp.
Spil spila einnig stóran þátt þegar þessi hluti fjölskyldunnar kemur saman, Catan, Risk og Kani eru þessi helstu, en í ár fór mikill tími í blak, en m&p voru búinn að koma upp myndarlegu neti útá túni þar sem við spiluðum öll kvöld í 2-3 tíma. Reyndar endaði það ekki mjög vel fyrir Róberti sem föckaði upp á sér öklanum með látum síðasta kvöldið – sem betur fer var það samt ekki brot. Að vanda voru prjónarnir teknir upp, mamma, og móðursystur mínar, Unnur Ýrr og Malla kepptust við að prjóna eitt og annað og prjónaði Malla litla sæta húfu á strákinn okkar og Unnur Ýrr vetlinga í stíl.
Eins og venjulega er helgin alltaf alltof stutt og langaði okkur að vera í viku í viðbót, við gerum það kannski þegar “Bjössi” litli verður kominn í heiminn.
Hér er smá brota af myndunum en albúmið er einnig komið á myndasíðuna.
-
-
Malla og allir aðrir í Nauthólsvík
-
-
Paintball í feisið :)
-
-
Bombs Away!
-
-
-
Fjölskyldan við brennuna
Recent Comments