Posted: September 21st, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: Bob Saget, leiðinlegt blog, Ögmundur Jónasson, status-blog | 7 Comments »
Ég viðurkenni það fúslega að ég hef ekki mikla trúa á blogg-mér, það er að segja að ég tel skemmtanargildi þess sem ég skrifa ekki hátt enda var það sjálfsagt ekki ein af ástæðunum fyrir því að ég kom upp þessu bloggi. Það hefur sjálfsagt verið sökum þess að við fluttumst til útlanda og ég hafi viljað gefa svona “status report” endrum og eins, þá sérstaklega af því að við vissum að von væri á litlum fyr seinna á árinu og að það væri hugsanlega einhver sem hefði áhuga á að vita hvað við værum að stússa.
Nú samkvæmt WordPress tölfæði sem ég hef aðgang að þá eru nú nokkrir sem detta hér inn daglega, lang flestir sjálfsagt þeir sem eru þegar búnir að “refresh-a” mbl.is 6 sinnum síðasta hálftímann og skoða öll blogg sem hugsast getur áður en hugsað er til ari.is . “Hits” er einn hlutur til að mæla vinsældir síða en “comment” (athugasemdir) svo annar, ef ég lít til baka á fjölda athugasemda sem mér hafa borist þá er óhætt að segja að ég tapi öllum vinsældarkeppnum sem haldnar hafa verið síðan 1994 eða frá því að Bob Saget hætti með Americas Funnies Home Videos.
Ragga Heiðars hefur þó gert hvað hún getur til að auka tölu athugasemda og þakka ég henni kærlega fyrir stuðninginn. Tinna hefur líka gert tilraun til að peppa mig upp með uppástungu um að ég gefi út bók, tjah.. ööö nei ég held barasta ekki, það yrði mér um of að geta ekki einusinni slegið út sölutölur ævisögu Ögmundar Jónassonar “Kratar eru ekki bara hommar”.
Það er best að kveðja netheima að sinni og drattast til að læra – Adios
Posted: September 19th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: bjarki, flutningur, rafnar, Randersgade, Sólveig, þórunn | No Comments »
Við tvö, eða þrjú réttara sagt, höfum undanfarna daga staðið á haus í að koma öllu fyrir í íbúðinni og gera hana 100% fyrir komu litla kúts. Við fluttum inn laugardaginn síðasta með góðri hjálp Rafnars, Sólveigar, Þórunnar og þunna Bjarka og náðum á sunnudeginum að vera búin að gera allt tipp-topp fyrir utan að koma fötum í skápa sem ekki voru til staðar í íbúðinni. Við létum skápaleysið ekki á okkur fá heldur keyptum tvo á miðvikudaginn og vorum við Rafnar 9 tíma að setja þá saman – það er frábært að eiga svona atvinnulausa vini sem ekkert annað betra að gera. Fimmtudagurinn fór svo í að útbúa undirstöður undir skápana því það eru jafn miklar líkur á að vinna í Víkingalottóinu eins og að finna slétt gólf hérna í Danmörku og að sjálfsögðu festa þá við veggina – ef það skildi koma jarðskjálfti :)
Á meðan ég hnykklaði sveitta vöðvana ( fjút-fjú! ) í takt við óstöðugu skápana með borvél í annarri og skrúfjárn í hinni þá gerast undur og stórmerki, Malla tók upp saumavélina sína og saumaði svona líka glæsilegar gardínur – allveg svaðalega fínt hjá stelpunni, ég er alveg að rifna úr stolti. Þessi saumavél hefur nefnilega, óupptekin, verið betur þekkt sem margt annað en saumavél það sem mér dettur helst í hug er náttborð, töskustandur og að sjálfsögðu geymsludjásn. Þess má einnig geta að vélin er 3 ára.
Okkur til mikillar ánægju, seint í gærkvöldi, þá slysaðist ég til að setja routerinn okkar í samband og viti menn við erum bara plögguð við umheiminn! Sem er svoldið skrítið því þeir hjá TDC sögðust ekki ætla að byrja að tengja okkur fyrr en næsta mánudag en ég ætla svosum ekki að kvarta yfir svona þjónustu. Það má þá fljótt eiga von á nokkrum flutningsmyndum.
Auuuj, ég var næstum því búinn að gleyma um að ræða um nýja hverfið en það er vægast sagt æðislegt. Við búum rétt við lítil kaffihúsatorg og tvær verslunargötur þ.a. nóg er af lífi sem er góð tilbreyting frá steríla umhverfinu á Sankt Kjelds. Í 50-100m fjarlægð frá íbúðinni má svo finna tvo leikskóla og tvær vöggustofur þannig að þetta gæti heinlega ekki verið betra fyrir okkur.
Gamla íbúðin er ennþá til leigu þó svo að ég sé að fara að sýna hana í næstu viku þ.a. ef einhvern vantar tveggja herbergja – voða fína íbúð á góðum stað, bjalla strax :)
Kannski svona að lokum þá er nýja heimilisfangið: Randersgade 33, 1, th 2100 Copenhagen
Posted: September 7th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: MS.c Management of Innovation and Environment DTU, ný íbúð, Randersgade 33, stolið hjól | 4 Comments »
Ótrúlegt en satt þá duttum við í lukkupottinn í síðustu viku en þá barst mér íbúðarauglýsing í gegnum BoligPortal.dk af íbúð á Randersgade 33 hérna rétt hjá á Østerbro. Hún hljómaði eiginlega of vel en við slóum á þráðin og vildum koma að skoða og viti menn þetta er nýuppgerð íbúð með nýjum innréttingum inná baði og eldhúsi, á mjög góðum stað og það sem meira er að hún er 3 herbergja á prís sem hægt er að sætta sig við, ef maður miðar við fáránlegu leiguverðin sem eru hérna úti.
Við ákváðum að reyna við hana en það voru 13 aðrir sem komu og skoðuðu en allt kom fyrir ekki, við kræktum í hana og erum sem sagt að fara flytja núna 15. sept. Ég er nú reyndar orðinn smá smeikur því ég hef ekki ennþá fengið leigusamninginn sendann en það skýrist allt í næstu viku. Ég bæti við hérna neðst korti af Østerbro og A) þar sem við búum núna og B) þangað sem við erum að flytja.
Annars er nóg að gera, ég er byrjaður í MS.c námi í Management of Innovation and Environment í DTU – er að byrja frekar hægt sökum íbúðamála og annarra hluta sem við erum að ganga frá því litli hellisbúinn er vænanlegur í heiminn 28. sept, ég vona innilega hann hlusti á foreldra sína og komi ekki fyrir tímann!
Svo eins og alltaf þegar það er mikið að gera gerist alltaf eitthvað óvænt – og yfirleitt ekki til þess að flýta fyrir eða minnka álagið, en í vikunni þá:
- var hjólinu hennar Möllu stolið fyrir utan íbúðina,
- fartölvan mín steindrapst uppúr þurru og er að sjálfsögðu dottin úr ábyrgð,
- húfan og vettlingarnir sem Malla og Unnur Ýrr höfðu prjónað á pjakkinn í sumarfríinu lentu óvart í þvottavélina og
- sléttujárnið góða brann yfir.
Svona er þetta stundum …

A) Sankt Kjelds Gade B) Randersgade
Posted: September 3rd, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: Arnar frændi, Baldur, DHL hlaup, gestagangur, Gunnþóra Mist, pabbi, rafnar, Sverrir, Verzló | No Comments »
Það er allt á fullu, ein ástæða þess að ég hef lítið látið sjá mig í netheimum. Kannski er best að byrja á gestaflóðinu en þegar við komum heim úr sumarfríin kom litla systa með okkur og var hjá okkur í 6 daga, stelpan var andskoti dugleg að versla á sig föt enda er ómögulegt að vera ekki með troðinn fataskáp þegar maður byrjar í Verzló og að sjálfsögðu splúnkunýja hvíta Macbook. Við systkinin fórum útum allan bæ að gera hitt og þetta og stundum með Möllu í eftirdragi en ég setti albúm á netið fyrir þónokkru sem teknar voru í heimsókninni.
Þegar ég fylgi systu á flugvöllinn þurfti ég ekki að bíða þar nema í 40 mínútur eftir þeim næsta sem myndi gista hjá okkur, þvílík þjónusta mar. Baldurinn mikli kíkti til okkar í 2 daga áður en hann lagði í hann til Tokyo ásamt fríðu föruneyti en þau voru að fara 10 saman í tveggja vikna ferðalag. Ég á nú eftir að ná tali af honum og fá að vita hvernig ferðin hafi verið og það sem meira er hvort hann sé lifandi eftir að hafa fengið sér þennan eitraða Blowfish – spennó! Rafnar varði lokaverkefnið sitt og fékk allveg 12 í einkunn sem er þokkalega splendidd og svo fékk hann loksins íbúð en hún er í Fredriksberg.
Pabbi leit svo við í síðustu viku og var yfir helgina og gerðum við heiðarlega tilraun, með Arnari frænda, að fara á Brøndby vs FCK í dönsku deildinni á Brøndby Stadion en allt kom fyrir ekki, síðustu miðarnir voru seldir fyrir framan nefið á okkur fyrir framan höllina þó svo klukkutími væri enn í leik. Við fórum þá bara á O’Learys á Hovedbanen og fengum prýðis sæti og nokkrar könnur af öli. Arnari tókst að eignast svona líka frábæran vin á salerninu á staðnum en það lá einn blekaður, hrjótandi svíi með ýstru sem Arnar fann sig knúinn til að hjálpa. Viti menn þegar hann var búinn að drösla honum á lappir hélt svíinn að Arnar væri nýji besti vinur sinn og elti hann að borðinu okkar, reyndi að troða sér á milli borða, stangaði bjórkönnuna okkar með ýstrunni þannig að bjórinn flæddi útum allt, þó mest á Arnar. Þegar svo var komið uppgötvaði svíinn að hann var búinn að gera skammarstrik og hljóp í burtu – en gaman.
Sverrir gaur skráði lið fyrir DHL hlaupið (5x5km boðhlaup, 100.000 þáttakendur – 20.000 á dag í 5 daga) sem er verið að halda núna í Parken og fékk mig og Rafnar til að taka þátt ásamt Daniel og herra W (hann heitir einhverju Asísku nafni sem ég man ekki og kalla hann því hér með herra W). Ég var á báðum áttum tveimur dögum fyrir hlaup hvort ég myndi passa í hlaupaskónna því þá varð ég fyrir líkamsárás af pöddu þegar ég lá í sólbaði í Parken – sjá skýringarmynd hér að neðan. En sem betur fer var bólgan farin að mestu og ég tilbúinn í hlaup. Daniel hljóp á ca 25 mín, ég hljóp á 22:40, herra W hljóp á 44 mín!!!, Rafnar sem hélt að herra W hefði farið heim að kúka í leiðinni hljóp svo á 22:30 og svo að lokum hljóp Sverrir á 27 mín. Ég ætla að fara framá við liðsstjórann hann Sverri að upptökur af hlaupinu verði grandskoðaðar til að greina það sem illa fór í hlaupinu því ég efast um að maður sé einu sinni 44 mínútur að skríða 5km !
-
-
ökklinn á mér eftir líkamsárás pöddu
-
-
Regnkápustöllur
-
-
Fjölskyldan á Sankt Kjelds með pizza partý
-
-
Systkinin að sýna blaklistir í Parken
-
-
Kíktum til Sverris í götupartý á Nansesgade
-
-
Skyldustopp við Kajann á Nyhavn
Recent Comments