Posted: October 24th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: ari, bjarki, buggi burger, den danske gryde, rafnar, Sverrir | 6 Comments »
Það eru margir búnir að vera að bögga mig á MSN eftir að ég flassaði að ég þyrfti aldrei að borða hamborgara framar. Mér finnst réttast að útskýra mitt mál. Síðastliðinn sunnudag fengum við teymið í heimsókn – þetta venjulega; Rafnar, Sólveigu, Þórunni, Bjarka og Sverri. Tilgangur hittingsins var að hluta til að sækja heim Den Danske Gryde sem gefa sig út fyrir að vera með stóra og yndislega hamborgara, þeir stæstu eru 1.6kg. Við strákarnir fórum og keyptum okkur 600 gr borgara, allir nema Bjarki sem vissi greinilega hvað var í vændum enda búinn að fá sér borgara hjá þeim áður. Borgararnir voru “massive” og þurfti Sverrir að taka á stóra sínum að halda á þeim heim.
Við hófumst svo handa við að hnoða hamborgurunum í okkur, sumir voru miklu miklu fljótari en aðrir – þetta endaði eiginlega með “face-off-i” milli litla og stóra eða mín og Sverris um hvor gæti borðað meira af borgaranum en hvorugur okkar hafði lengur gaman né gott af því að borða meira. Rafnar var sjálfskipaður dómari og dró upp viktina á heimilinu og viktaði báða diskana, það munaði 36 grömmum mér í vil. Sverrir undi ekki þessum niðurstöðum og krafðist frekara niðurbrots þannig að diskarnir okkar án borgara voru viktaðir og í ljós kom 1 gramms munur Sverri í vil – til hamingju Sverrir!
Það er óhætt að segja að þessum kafla sem Den Danske Gryde er, má loka. Engann okkar langar aftur í svona stóran borgara en þó verð ég að viðurkenna að borgarinn með rauðkálinu og fleskesteig frá þeim lítur vel út, ég fæ mér kannski svoleiðis einhvertíma í eðlilegri stærð.
Posted: October 16th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: fimleika drottining, listræna járnfrúin, Magdalena Rós Guðnadóttir, mömmu blogg, nýtt blogg | 5 Comments »
Já góðir hálsar, herrar mínir og frúr – listræna járnfrúin, fimleika drottningin, fegurðar dísin og móðirin Malla Rós hefur rétt í þessu látið undan þrýstingi og opnað blogg og hefur það heimilisfangið www.malla.dk. Hellisbúarnir á heimilinu eru yfir sig hrifnir af uppátækinu og vonast eftir aragrúa af fréttum af sjálfum sér um ókomna framtíð. Þeir hvetja alla til að leggja leið sína þangað svo hún verði ekki einmana og leggji upp laupana í blogg málum.
Til hamingju með bloggið Mallan okkar,
- Hellisbúarnir
ps. það má einnig benda á smá fítus á blogginu hennar sem lítur út eins og þetta hér, en það er að hægt er að skipta um liti með að smella á litlu bláu-bleiku-grænu kassana uppí hægra horninu, það er nefnilega best að skoða bloggið hennar í bleiku :)
Posted: October 14th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: Magdalena Rós Guðnadóttir, mömmu blogg | 13 Comments »
Ég er hjartanlega sammála þeim sem hafa skrifað mér línu að það sé þörf á mömmu bloggi, hún Malla hefur líka minnst á það að hún ætti kannski að fara að skrifa en eins og með svo margt almennt að þá er maður eitthvað að stússast annað þannig að þetta gleymist. En það er tími til kominn að gera eitthvað í málunum, það er ótækt að flytjast erlendis í nokkur ár, eignast barn/börn og þeir sem eftir sitja í kreppunni fá lítið að frétta.
Það sem mig langaði að gera hér er að koma með þrýstifærslu sem lesendur geta gert athugasemd við og hvatt stelpuna til þess að byrja af krafti. Þess má geta að hún hefur ekki bloggað síðan fimmtudaginn 26. apríl, 2007.
Nú spyr ég: hverjir vilja mömmu blogg ??
Posted: October 12th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: gravatar | 4 Comments »
Ég skipti um útlit á síðunni í síðustu viku eins og glöggir hafa eflaust tekið eftir, það var nú aðallega gert útaf því að textinn á gamla útlitinu kom oft svo asnalega út, sérstaklega ef ég notaðist við “bullets and numbering”. Þegar ég var að gramsa í þeim möguleikum sem nýja útlitið býður uppá þá rakst ég á Gravatar stuðning í athugasemdum sem er helvíti sniðugt finnst mér. Gravatar er í raun bara mynd sem er tengd við tölvupóstfangið hjá þér, þannig að þegar þú ert að skrifa athugasemdir eða póst á “forum” (vantar ísl. orð yfir forum) og notar tölvupóstfangið til að skrifa undir – líkt og á blogginu hjá mér, þá birtist myndin. Það eru nefnilega fjölmörg blogg og forum forrit sem bjóða uppá Gravatar stuðning því er tilvalið að búa sér til aðgang snöggvast, en það geriru hér í örfáum skrefum. Hér er dæmi um það sem ég er að tala um, ég með gravatar en Eva Dögg og Sonja ekki:

Það væri gaman ef þú fengir þér Gravatar svo við sjáum þig þegar þú gerir athugasemdir hér :)
Recent Comments