Posted: November 16th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | 7 Comments »
Það er búið að vera í nógu að snúast hjá okkur síðustu daga og ég of þreyttur til að skrifa. Mig langaði bara til þess að láta vita af nýjum albúmum. Á netið eru komnar myndir frá Þakkargjörðarhátíðinni á Randers sem haldin var í gær með pompi og prakt, einnig setti ég hlekk á nóvember albúmið okkar sem mér ljáðist að gera um daginn.
Posted: November 13th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: 10 mistakes that could be killing your blog, blogg, klikk, popurls, writetodone | No Comments »
Ég rakst á nokkuð góða síðu fyrr í dag, í gegnum popurls.com, þegar ég var að taka mér pásu frá heimalærdómnum. Síðan er writetodone.com sem í grunninn er greinasafn eða blog um hvernig maður getur betur um bætt skrifin sín. Pósturinn sem greip athygli mína var 10 Mistakes That Could Be Killing Your Blog og að sjálfsögðu það fyrsta sem ég hugsa er hversu mörg atriði á við mitt litla ljúfa blogg, skoðum hvernig bloggið stendur.
Fail vs Success
Eftir að vel ígrunduðu máli hef ég komist að þeirri niðurstöðu að bloggið fellur undir þennan hatt. Það sem ég inní reikninginn er áður útgefin skrif mín um innihaldsleysi og viðvarandi skort á skemmtilegheitum í eigin póstum og heimsóknameðaltal uppá 50 hræður/dag. 1-0
Það þarf nú ekki að staldra lengi við hér, ég hef satt að segja komið sjálfum mér mikið á óvart hversu lengi og vel ég hef endst í að búa til pósta, ég jafna 1-1.
- Writing about infrequent posting
Tja! Ég er svoldið efins hérna, ég tel að ég hafi nú aldrei skrifað um hversu lítið ég skrifa þannig að tæknilega er ég hólpin hér en ég hef skrifað nú í tvígang um efasemdir mínar um skemmtanagildi skrifana sjálfra sem ættu að gefa mér mínus í kladdann. Ég skrái stig á mig stig en er þó ekki stoltur af því, 2-1.
- Not displaying your best posts
Hér er ég tekinn í bólinu, satt best að segja var ég fyrst með þetta “widget” í gangi á síðunni en þegar ég skipti um útlit fannst mér ekki sniðugt að hafa það í gangi. Staðan er 2-2 þó svo ég sé búinn að gera snöggar endurbætur og setja “widget”-ið á síðuna.
Ég hef alltaf hallast að minimalískum stíl, bloggið er frekar einfalt og stílhreint, kannski fyrir utan það að breiddin á “widget” kössunum hérna hægramegin mætti vera 10px meiri og svo er allt útbýjað af málfars- og stafsetningavillum sem fer sérstaklega í taugarnar á Möllu og Röggu – sem ég hef lúmskt gaman af :) Þetta var svoldið “off-topic” en eins og sjá má eru engar auglýsingar á síðunni, þ.a. staðan er 3-2 takk fyrir.
- Trying to push products too often
Þetta á alls ekki við mig að eigin mati, woohoo! 4-2.
- Long posts that are hard to scan
Ég viðurkenni það fúslega að ef ég er að skanna netið þá les ég sjaldan pósta sem eru langlokur og hef einmitt haft það að markmiði að skrifa frekar styttri pósta en lengri. Þessi póstur hér er sjálfsagt sá lengsti sem ég hef skrifað hingað til. Hann er í þessum skrifuðu orðum 430 stafir að lengd. Sigur fyrir mig, 5-2.
- Pop-up subscription boxes
Ekkert svoleiðis hér. Ég er farinn að fá á tilfinninguna að þetta blogg mitt sé best í heimi, það er að hala inn stigunum núna, 6-2.
- Way too much clutter on your site
Ekki satt! Bloggið mitt er fallegt, 7-2.
- Boring or uninformative headlines
Ekki satt heldur! Eða ég vona ekki því ég reyni nú að láta fyrirsögnina lýsa innihaldinu en það er spurning með þetta þarna “boring”. Þar sem ég fékk stig áðan fyrir tæknilegt smáatriði dæmi ég af mér stig hérna á móti. Staðan er 7-3 og ekkert eftir í pottinum.
Niðurstöðurnar eru komnar í hús, staðan er 7-3 fyrir bloggið mitt, hip-hip-hurray! Það er ekkert svo slæmt eftir allt saman en hefði þó eflaust gott að því að vinna aðeins í sjálfstraustinu.
Posted: November 9th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: comics, hljóðbækur, podcast | 4 Comments »
Eftir að ég uppgötvaði hvað hljóðbækur eru æðislegar þá má segja að ég hafi verið fastur í vef rithöfundarins Bernard Cornwell eins og glögglega má sjá á listanum mínum. Ég setti mér því markmið fyrir nokkrum mánuðum að auka fjölbreytnina í bókavali og hef síðan þá hef ég bætt við rithöfundunum Robert Ludlum (Bourne series), Patrick OBrian (Aubrey & Maturin series), Lee Child, Ernest Hemingway o.fl.
Ég talaði líka við Einar Svein mág minn og bað hann um að benda mér á skemmtilegar teiknimyndasögur (Comics) og hann mælti með Sin City, The Dark Knight, Preacher og The Watchmen. Nú þegar er ég að vera búinn með Sin City og er alveg hæst ánægður – þessar Comics eru svo skemmtilegar því þær gefa manni ákveðna hugmynd um það sem er að gerast með texta og grófri teikningu af því sem er að gerast og skilja eftir nógu mikið fyrir lesandann til að fylla inní.
Hörður Már hefur lengi verið að agentera fyrir hinu og þessu “podcast” og loks lét ég til leiðast og er farinn að hlusta á Macbreak Weekly þar sem farið er yfir hitt og þetta sem er að gerast í tækniheiminum sem tengist vörum frá Apple, 60 Minutes sem flestir þekkja og svo Kompás. Ef þú veist um einhver skemmtileg podcast endilega láta mig vita.
En aftur að hljóðbókunum, þá hef ég ekki ennþá fundið forrit sem fjarlægir DRM vörn af .aa skjölum þannig að ég met mikils ef ég fæ vísbendingar um eitthvað forrit sem virkilega virka!
Posted: November 6th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: canon 400D, draumar, iphone, macpro cinema display, mauser 98, vw beetle | 6 Comments »
Það alltaf eitthvað sem hugann girnist, ég var nefnilega að reyna að læra eitthvað um daginn en bara gat ekki haldið einbeitingunni fyrir hlutum sem mig langar mikið í. Þeir skutu upp kollinum og hafa eiginlega ekkert farið síðan þ.a. ég er er að vonast til þess að losna við þá ef ég skrifa aðeins um þá eins og ég hef lært að gera með hluti sem ég þarf að framkvæma (Getting Things Done).
VW Beetle
Mig hefur langað í gamla Bjöllu í mörg mörg ár og ég ætla mér einhvertíma að kaupa eina til að nota dags daglega. Reyndar er ein appelsínugul í fjölskyldunni en hún er meira safngripur og sunnudagsbíll.
MacPro og Cinema Display
Það er bara eitthvað ómótstæðilegt við 8 kjarna og 24 tommur, ég get eiginlega ekki alveg lýst því. Það má kannski líkja þessu við hrifningu karlmanna á Double D. Í öllufalli er þessi uppsetning til að deyja fyrir.
Mauser 98
Ég er á viðkvæmu skeiði, nefnilega veiðiskeiðinu sem heimsækir mig árlega þegar rjúpnaveiðitímabilið byrjar. Í ár kemst ég ekki til fjalla til veiða, mér datt í hug að ganga á Himmelbjerget til að fá kannski smá “fíling” en því meira sem ég hugsa um það þá finnst mér það þeim mun ólíklegra. Mauser 98 er reyndar riffill en ekki haglabyssa en ég hef gaman af öllu sem skýtur blýi. Planið er að koma sér í skotklúbb hérna í CPH og versla sér gamlan riffil.
iPhone
Ég er búinn að tala stanslaust um iPhone í marga mánuði. Væntingar mínar til hans eru geigvænlegar, ég held að það sé sá hlutur sem ég tæki með mér á eyðieyju ef mætti bara velja einn hlut.
Canon 400D
Óhætt að segja að 400D sé best fyrir peninginn um þessar mundir. Það hefur staðið lengi til að taka sig saman í andlitinu og læra að taka flottar myndir. Þessi færi vel með MacPro og Cinema display.
Lífið er þó þannig að maður fær ekki allt það sem maður vill og svo er það líka stundum þannig að það sem maður vill er ekki það sem maður þarf. En það skemmir ekki fyrir að eiga sér drauma, ég er svo heppinn að eiga æðislega fjölskyldu og allt gengur okkur í haginn þannig að ég leyfi mér, í augnablikinu, að dreyma um materialíska hluti :)
Recent Comments