Posted: December 28th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | No Comments »
Ég biðst innilegrar velvirðingar á að hafa svikið gefið loforð um blog póst sunnudaginn 21. desember síðastliðinn. Þennan sunnudag var drengurinn okkar Möllu skírður Dagur Björn, en athöfnin fór fram í Álfalandinu hjá ömmu Ástu og Bjössa afa. Við foreldrarnir erum mjög fegin að getað notað fallega nafnið hans opinberlega.
Við ákváðum að hafa skírnina heima við og hafa einungis nánustu fjölskyldu viðstadda því annars hefðum við lent í því að halda risa veislu sem við vorum ekki alveg tilbúin í, nýkomin frá Danmörku og svo stutt til jóla og sjáum við alls ekki eftir þessari ákvörðun því skírnin var æðisleg þó ég segi sjálfur frá – þó hefði verið mjög gaman ef allir hefðu getað verið viðstaddir þ.e. vinir og aðrir ættingjar. Pálmi Matthíasson skírði strákinn, Gunnþóra systir spilaði á fiðlu og Guðrún Birna og Guðni afi tóku lagið.
Myndir úr skírninni eru væntanlegar innan skamms í desember albúmið okkar sem var að koma á netið.
Posted: December 20th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: litli hellisbúinn, nafn, skírn | 6 Comments »
Þá er ég loksins kominn heim og síðasta skólaverkefnið að baki, en það var skype kynning í á fimmtudaginn var. Ég get þó ekki látið jóla stressið vaða yfir mig alveg strax því á morgun er skírn litla hellisbúans.
Það er í rauninni tími til kominn að sá litli fái nafnið sitt því við foreldrarnir erum orðnir mjög þreyttir á þessum leyndó leik, það var gaman að halda þessu leyndu fyrsta mánuðinn eða svo en núna er þetta bara barátta hvern dag um að missa nafnið ekki útúr sér.
Ég ætla mér að gera tvennt á morgun á netinu og það er að blogga og opinbera nafnið hans litla og setja inn myndir í desember albúmið :)
Að lokum, þá fer hver að verða síðastur að giska á nafnið hér í athugasemd ;)
Posted: December 12th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Books, Daily Life | Tags: audiobooks, demonoid, DTU reports, hljóðbækur | No Comments »
Ojj, það er svo ógeðslega pirrandi að sitja fyrir framan tölvuskjáinn bara gapandi yfir næsta verkefni. Ekki það að verkefnið sé erfitt heldur að fara að setja sig inní hluti og skrifa stutta rannsóknarritgerð á þrem dögum er erfiðara en maður heldur ef ekki snefill af áhuga er að finna. Ég er það langt leiddur núna að mér finnst skemmtilegra að opna og loka geisladrifinu í tölvunni sem ég sit við á bókasafninu í DTU en að læra og ég verð að segja að gylliboð Sverris og Rafnars um hörku djamm í kvöld eru ansi freistandi…
Ég tók mér smá pásu í gær til að ná andanum eftir síðasta verkefni og fór á net-stúfana eftir nýjum og spennandi hljóðbókum. Ég rakst á nokkra höfundi sem lofa góðu en þeir eru; David McCullough, James Lee Burke, Stieg Larsson, Michael Shaara og Kevin J. Anderson. Á demonoid.com var svo þónokkrar bækur að finna og hef ég komið nokkrum þeirra fyrir á iPod-num mínum, reyndar er ég þegar kominn vel inní fyrstu bókina í ‘Saga of the Seven Suns’ seríunni, Hidden Empire eftir K. Anderson og líkar bara mjög vel.
Það er óhætt að segja að hljóðbækurnar haldi í mér lífinu þessa dagana því þegar ég er alveg að fara að taka tryllinginn þá halla ég mér bara aftur, set bók í gang, loka augunum og dett inn í annan heim.
Ég ætla að hætta þessu væli enda stutt í skil og endurfundi við fjölskylduna á Íslandi…
Posted: December 9th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: dtu, google ads, litli kútur, torrent | 9 Comments »
Það er einhvern veginn þannig að um þessar mundir er ég að gera ýmsa hlut í fyrsta skipti.
Ég er í fyrsta skipti í burtu frá litla sæta Copy-Paste Arasyni sem fór með mömmu sinni til Íslands um daginn, og ég er satt best að segja í algjöru rusli. Þó svo að ég heyri í og sjái þau daglega á Skype, fái MMS reglulega þá get ég ekki sofnað á kvöldin fyrr en ég hef rennt yfir myndir af honum á netinu. Mér finnst alveg merkilegt hvað litli maðurinn er orðið mikilvægur hluti af lífinu og hversu stórt tómarúm myndast þegar hann er ekki heima – og allur þessi tími ? hvað í ósköpunum á maður að gera við allan þennan tíma sem myndast þegar maður er ekki að sinna krílinu, baða, skipta á bleyju, skipta á ælufötum, knúsa, tala, svæfa eða bara sitja og dást að honum.
Reyndar á ég að vera að læra, er á kafi í prófum og verkefnavinnu í DTU og það er stutt eftir þannig að það er best að fara að einbeita sér eitthvað. Ég fer með kvöldflugi 15. des heim til Íslands og þá get ég loks sofið rólegur.
Fyrsti torrent-inn leit dagsins ljós í vikunni. Flestir þekkja torrent sem “eitthvað stöff” sem maður notar til að sækja Despó og Greys og allt hitt dótið en það sem ég á við er að ég bjó til minn fyrsta torrent til að deila en ekki sækja :) Þetta er svosum ekkert merkilegt nema kannski einkennilegt að ég sé fyrst núna að búa til torrent, verandi 38% nörd, 40% netsjúkur og margra ára reynslu af torrent niðurhali. Ætli ég hafi ekki byrjað að sækja torrent fyrir alvöru haustið 2002 þegar ég var að nota einhvern linux console bittorrent client til að sækja bilað magn af gögnum á vefþjón vélaverkfræðinnar í HI en þaðan áframsendi ég gögnin heim til M&P. Mér fannst þetta frábær leið til að sækja dót því á þessum tíma var rukkað fyrir erlent niðurhal.
Í síðustu viku varð mér svo á að hrekkja konu all svakalega á leið minni í lestina og uppí skóla. Það var þannig að við vorum að mætast og heyrnatólin mín fóru eitthvað að renna af stað á hausnum á mér þannig að ég lyfti skyndilega upp báðum höndum til að bjarga þeim frá falli en viti menn þá varð mér á að prumpa geðveikt hátt, svona eins og mini-þokulúður. Kellingunni krossbrá við þessa furðulegu tilburði og ég strunsaði áfram án þess að biðjast afsökunar. Ég veit nú ekki alveg af hverju ég er að segja frá þessu nema hvað mér fannst þetta geðveikt fyndið, hahaha ..
Í skólanum er ég, ásamt fleirum, að vinna að verkefni sem snýr að viðskiptaáætlun sem gengur útá að Wi-Fi væða CPH. Í kringum það verkefni höfum við verið að skoða auglýsingamöguleika og þá sérstaklega auglýsingar sem nýta sér ýmsar upplýsingar um notendur svo sem aldur, kyn, nethegðun, staðsetningu o.fl. Svona auglýsingar eru til að mynda stór tekjustofn Google en það merkilega er að þessar auglýsingar hafa aldrei átt við mig, fyrr en í dag þegar ég klikkaði viljandi í allra fyrsta skipti á auglýsingu sem var “powered by Google ads”.
Frekar ómerkilegt ég veit, en samt … Er einhver sem hefur komist í kynni við eitthvað nytsamlegt í gegnum Google ads og/eða klikkar að staðaldri ?
Recent Comments