Afmæli og fleira
Posted: February 24th, 2009 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Books, Daily Life | Tags: afmæli, Arna Eiríks frænda, Atli, blog, dtu, hljóðbók, þrítugur | 5 Comments »Það er búið að vera nóg að gera í afmælamálum þó svo að við Malla höfum misst af þeim flestum, því miður. Ýmist hafa afmælisbörnin stungið af erlendis (psst, Rafnar og Sólveig – ef þið komið ekki í heimsókn bráðum þá tek ég bara upp pakkann til ykkar sjálfur!) eða þá að við sjálf höfum þurft að fara erlendis en einna verst var að missa af þrítugsafmæli stóra brósa þann 8. febrúar. Það minnir mig á það að einungis eru 17 mánuðir í það að ég verð sjálfur þrítugur, ég tók smá æsing yfir þessu um daginn þegar Atli átti afmæli en ég spurgði hann hvort “þetta” væri bara virkilega búið en hann stappaði stálinu í litla brósa eins og góðum stóra brósa sæmir.
Á laugardaginn var okkur boðið í afmælisteiti til hennar Örnu Eiríks frænda og virðast örlögin hafa spilað eilítið inní þar því við vorum tókum dónalegt “no-show”. Á laugardagsmorguninn mætti ég **** þunnur í fótboltamót upp í Gladsaxe sem endaði með sigri DTU Daðlana sem svo endaði aftur með pizzu og fylleríi sem endaði svo á endanum með að ég bara gaf upp öndina uppí rúmi rétt rúmlega 9. Sorry Arna mín :)
Ég áttaði mig líka á því í fyrradag að þann 24. feb – í dag semsagt á ég sjálfur hljóðbókaafmæli því eitt ár er liðið frá því að ég tók ástfóstri við hlustun bóka. Þess má geta að á þessum tíma hef ég hlustað á nákvæmlega 42 bækur, en eins og flestir vita er talan 42 svarið við lífinu, alheiminum og öllu öðru. Mér finnst þetta helvíti vel af sér vikið og vona ég að næsta ár verði jafn efnilegt, reyndar er Malla stundum alveg tjúll þegar hún þarf að endurtaka sig ef ég er að hlusta á bók því ég heyri náttúrulega ekki neitt – ætli það sé ekki best að kaupa hana henni einhverja gjöf til að stilla til friðar.
Uppfærsla: 24/02
Ég er náttúrulega eitthvað kexaður því ég var búinn að gleyma því að þann 21. febrúar síðastliðinn var ár liðið frá því að blog.ari.is fór í loftið eftir laaaangan svefn, ætli það sé þá ekki best að ég kaupi smá pakka handa mér í tilefni dagsins, ég elska nefnilega svona “frá mér til mín” pakka ;)




Recent Comments