Posted: April 4th, 2009 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | 2 Comments »
Dagur var vaknaður klukkan sjö í morgun og litla yndið lætur svo lítið fyrir sér fara, er bara til í að hjala. Ég fór með hann framúr hálftíma síðar, við feðgarnir höfum nefnilega komist að því að það er margt í gangi hérna í hverfinu á morgnana, hvort það er stelpan sem býr á móti á túttunum, pylsuvagnar á rúntinum, fólk og börn á leið í vinnu og skóla. Í morgun þó sáum við Tove, rónakélluna af efri hæðinni, skjaga yfir götuna til að hitta Gráu Krullu, rónakélluna með hundinn úr stigaganginum við hliðina, og rónaverkamann nr. 1, en þeir eru yfirleitt tveir saman.
Mér finnst það helvíti vel gert að vera milli fimmtugs og sextugs og hittast á laugardagsmorgni klukkan hálf 8 til að sturta í sig, classic. Ég er ansi hræddur um að Tove fái nú ekki að passa Dag Björn eins og hún er alltaf að tala um, eða ættum við að gefa henni séns ? .. .. not! Ég vona að Tove lesi ekki bloggið mitt.
En í dag er ágætis dagskrá, fyrst ætlar Dagur að fá sér sveskjugraut í fyrsta skipti – það verður eitthvað að fylgjast með því. En svo ætlum við feðgar í sund og svo förum við fjölskyldan í afmæli til Viktors Bjarkar stóra frænda sem á eins árs afmæli í dag. Til hamingju frændi!
Posted: April 1st, 2009 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: eee pc | 3 Comments »
Ég sit hérna við stofuborðið og skrifa fyrsta bloggið í langan tíma á litlu skólatölvuna sem ég keypti mér um daginn. Ég er búinn að liggja yfir verkefnavinnu í skólanum þar sem allir eru með fartölvur og gögnin sín við höndina og fannst mér ég vera svoldið útundan því svo virðist vera að fólki sé almennt illa við að leyfa öðrum að nota fartölvurnar sínar.
Ég fór þá á netið að skoða hvaða möguleikar væru í stöðunni í fartölvum og lagði ég upp með þrjár aðal kröfur og þær voru að tölvan yrði að vera 13.3″ eða minni, ódýr og með þokkalegt batterí. Ég skoðaði umsagnir eftir umsagnir um hinar og þessar vélar og gat loks fækkað mögulegum vélum í tvær, en þær voru Eee PC 1000HE frá Asus og Dell XPS M1330.
Þó svo að ég ætti bara eftir að velja á milli þessara tveggja véla reyndist það mun erfiðara en ég átti von á. Krafa númer 4, sem ég lagði ekki upp með er afkastageta örgjörva og skjákorts og var hún að reyna að lauma sér inn í umræðuna. Það var ekki fyrr en ég neyddi sjálfan mig til að halda mig við fyrri kröfulista sem ég gat tekið ákvörðun um tölvukaupin án þess að hika frekar. Eee PC hefur nefnilega mikið forskot á XPS vélina hvað varðar fyrstu 3 kröfurnar en skíttapar í þeirri 4.
Til að gera langa sögu stutta þá endaði ég með að versla mér Eee PC vélina frá linuxshoppen.dk og líkar mér bara vel við gripinn enn sem komið er, þó það séu nokkur atriði sem valda vonbrigðum svo sem úrill snertimús og hærri viftuhljóð en ég reiknaði með. En fyrir þá sem eru að velta því fyrir sér hvaða stýrikerfi er á vélinni þá er það að sjálfsögðu Ubuntu linux.

Recent Comments