Ari. age 30. one girlfriend. one boy. blue eyes. icelandic. live in denmark. school. football. weight lifting. mac & linux. book worm. cooking. coding. creating. thinking. doing.

Bissí bissí

Posted: June 5th, 2009 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | No Comments »

Jæks, það er búið að vera endalaust mikið að gera síðustu vikur, próf og verkefnavinna, fólk í heimsókn og við á þvælingi. Í vikunni þá vorum við í árlegri heimsókn hjá fjölskylduvinum á Jótlandi og planið var að kíkja til Lund í að heimsækja verkfræðigengið þar en við erum bara alveg búin á því í bili, afsakið elskurnar :). En svona er það maður verður að taka smá aflappelsi inn á milli. Í næstu viku byrja ég í júníkúrsinum Risk and Decision Analysis sem er víst algjör dauði og svo geri ég ráð fyrir að það detti inn verkefni fyrir mig frá Calidris áður en langt um líður þ.a. Malla verður líklegast einstæð eins og í mai þegar verkefnavinnan stóð sem hæst.

Annars erum við búin að ákveða að koma heim til Íslands í mánuð eða svo, frá miðjum júlí fram í miðjan ágúst og okkur er farið að hlakka svoldið til, þá sérstaklega að komast í hina og þessa gönguna því við vorum svo heppin að komast yfir svona alvöru göngupoka fyrir Dag á loppe-markaði á Øster Fælled Torv um daginn, þ.a. það verður lítið mál að taka hann með. Við erum meira að segja búin að taka smá forskot á sæluna með að lalla uppá Himmelbjerget með strákinn, honum fannst það æðislegt, svo æðislegt í rauninni að hann; skríkti alla leiðina og gerði föður sinn nánast heyrnalausann og fékk tvær tennur!

Já fyrst við verðum heima á Íslandi í mánuð stendur íbúðin okkar tóm, ef þú sjálf/ur langar eða veist um einhvern sem hefur áhuga á ódýrri gistingu á besta stað í Køben, þá máttu endilega láta mig vita :)

Mig langar líka að benda þeim sem eru að nálgast hámarkið í “ég nenni ekki að..” að fá sér rauðvínsglas og setja Dread Rock e. Okenfold og Clubbed to Death e. Rob Dougan á fóninn, ég sver það að það svínvirkar ;)