29
Posted: July 24th, 2009 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life | Tags: 29, grái fiðringurinn, Sólon | No Comments »Ekki fyrir all löngu þá varð ég 29 ára og eins og svo margir sem nálgast þröskuldinn milli þess að vera ungur og gamall, þ.e. fertugsaldurinn eða “the big three O”, þá fór ég að hugsa um hversu mikið maður hefur breyst á undanförnum árum. Ef satt skal segja þá finnst mér 29 vera nýji 23 – það hefur sáralítið breyst nema þetta klassíska að kollvikin hækka og húðin krumpast en það er bara svona eins og þriðja kryddið – gerir man örlítið meira æsandi.
Þetta árið héldum við Malla uppá afmælin okkar á Sólon þar sem almenningur gat komið við og borið okkur augum og jafnvel fengið súran bjór fyrir ómakið. Mætti þar hið myndarlegasta lið sem veitti okkur mikla ánægju og langar mig að nota tækifærið og þakka þeim sem komu – komuna. Annars ræddi ég þar við mér fróðari og eldri menn um hvað tæki svo við og við hverju ég má búast á næstu árum. Þar bar hæst umræða um Gráa fiðringinn sem ræðumenn voru nú sammála um að væri einn af mikilvægari þáttum seinni ára hvers manns, en frekar var rætt um að ekki ætti að hræðast eða streitast á móti komu fiðringsins, heldur taka honum opnum örmum og beina orkunni sem fylgir geðshræringu hans til góðs. Nú, til góðs getur að sjálfsögðu þýtt margt en Harley Davidson, Porche og Berretta er til að mynda allt mjög gott.
Annars leiðir tíminn þetta allt í ljós og alltof snemmt að fara að velta sér uppúr þessu núna, enda tími til kominn að drífa sig úr vinnunni niðrí Nauthólsvík í sjósund. Yfir og út.



Recent Comments