Myndakvöld
Posted: August 20th, 2009 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Daily Life, Tech | Tags: albúm, árni torfa, canon ixus, drobo, lightroom, myndasafn, photoshopcafe | 4 Comments »* Uppfærsla: Þá er maður búinn að taka til í öllu saman og brenna allt heila klabbið á DVD diska sem ég þarf svo að koma í vörslu einhversstaðar. Ég hætti við að setja inn allar myndir í Lightroom heldur byrja bara að nota forritið með myndirnar frá því sumar. Núna eftir að hafa notað það svoldið get ég hiklaust mælt með því.
** Uppfærsla: Bjarki kom til mín, grænn í framan, því að hann þurfti að strauja iMac-ann sinn sem innihélt allar myndirnar þeirra Þórunnar og var svo í smá vandræðum með að “restore” afrit frá flakkara sem hann tók með Crashplan, þ.e. eina eftirlifandi afritið af myndunum. Við settumst niður og komumst að því hvernig þetta virkaði og í ljós kom að þetta var ekkert mál í rauninni – en ég skildi vel hversu stressaður hann var og núna líður mér rosalega vel því myndirnar okkar Möllu eru öruggar :)
Það er búið að standa til óendanlega lengi að taka til í digital ljósmyndahaugnum sem maður er búinn að koma sér upp í gegnum árin. Ef ég man rétt þá keypti ég mér mína fyrstu digital vél 2001 og var held ég Canon Ixus V á tæpar 70þ krónur með öllum helstu fylgihlutum. Síðan þá höfum við Malla verið alveg dugleg að taka myndir en einhvern veginn er það bara þannig að digital myndir enda miklu síður á pappír í albúm en þessar hefðbundu – mikil synd!
En hvað um það, ég keypti nýverið Drobo box sem er í raun bara kassi með hörðum diskum nema hvað það er smá auka öryggi innbyggt sem ég nenni ekki að fara útí. Drobo-inn keypti ég einmitt til þess að passa uppá myndirnar okkar en þær hef ég geymt hingað til á einhverjum linux vélum í bílskúrnum hjá M&P og eftir að tveir harðir diskar í þeim dóu um daginn varð mælirinn fullur og ég réðst í að safna þeim saman yfir á Drobo-inn í “sumarfríinu” um daginn og ég verð að segja að það er mikill léttir að hafa komið þessu saman á einn og öruggari stað.
Ég var rétt í þessu að skoða heildarstærð myndanna og er þetta rétt rúmlega 65.7 Gíg af myndum og smá vídjóum, en sjálfsagt er einhver tvöföldun í gangi þ.a. ég er ekki alveg með á hreinu hvað þetta er raunverulega mikið en þetta er í öllu falli stór hrúga!
Ég er líka búinn að vera að skoða ýmsar leiðir til að halda utan um safnið – til að mynda höfum við verið að nota iPhoto síðustu tvö árin en nú er staðan þannig að Mac-Mini-inn sem er að keyra herlegheitin er alveg að gefast upp því albúmið er orðið of stórt fyrir hann. Hjá Árna Torfa ljósmyndara sá ég svo Lightroom, hugbúnað frá Adobe, sem ég hef svo verið að skoða og líst bara vel á, í öllu falli virðist hann vera miklu heilstæðari lausn með geymslu máta í opnum staðli o.s.frv, sem í raun þýðir að eftir nokkur ár er líklegra að ég geti enn notað svipaða uppsetningu á myndaskipulaginu og ég mun búa til núna.
Ég ætla sem sagt að ráðast á hauginn næstu daga og það á eflaust margt skondið eftir að koma í ljós þ.a. einhver ykkar á eflaust eftir að fá tölvupóst frá mér með glaðningi :) Til að aðstoða mig við að komast í gírinn horfði ég í dag og í gær á nokkur kennslumyndbönd frá photoshopCafe.com um notkun á Lightroom 1.3 sem ég mæli hiklaust með fyrir þá sem eru að hugsa um að detta í svipað brjálæði.
Jæja, nú er ég nýbúinn að klappa sjálfum mér á bakið – einn, tveir og byrja!



Recent Comments