Ari. age 30. one girlfriend. one boy. blue eyes. icelandic. live in denmark. school. football. weight lifting. mac & linux. book worm. cooking. coding. creating. thinking. doing.

Vika 24

Posted: June 16th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Fitness | Tags: , , , | 1 Comment »

Ó nei! Það er allt í bakkgír. Ég er orðinn langþreyttur á æfinga prógramminu mínu, æfingastöðinni og á því að lyfta einn og niðurstöðurnar leyna sér ekki. Reyndar var við þessu að búast en ég er ekki búinn að gera neinar ráðastafanir fyrr en núna, er að vinna í að búa mér til nokkur æfingar prógrömm og ætla að skipta á milli þeirra með reglulegu millibili. Svo af því að við Malla ætlum heim til íslands í mánuð er ég að reyna að koma mér inn í Boot Camp svo ég missi ekki allt niðrum mig. Mælingarnar hér eru reyndar viku gamlar því það gékk frekar illa að innheimta mælingarnar, svosum ekki skrítið þegar EM er í fullum gangi.

Mig langar reyndar að deila með ykkur “pepp” myndinni sem ég sendi á strákana í síðustu viku.

 

 


Vika 22

Posted: May 30th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Fitness | Tags: , , , | No Comments »

Úllalla! Nýr mánaðarmeistari var krýndur síðastliðinn þriðjudag við hátíðlega athöfn í Sankt Kjelds Gade 23, Kaupmannahöfn. Sör Ari bar sigur úr býtum að þessu sinni með yfirburðum en ennþá er langt í land.

Spurning hvort að glöggir sjái 3 villur milli myndana hér að neðan.


Vika 21

Posted: May 21st, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Books, Fitness | Tags: , , , | No Comments »

Það er mikil spenna í herbúðum íslenskra dana um þessar mundir (Ara & Sverri) því þeir hafa staðið sig með príði það sem af er Maí mánuði og verma tvö af efstu þremur sætunum, en betur má ef duga skal því Ingibjörn, Mánaðarmeistari Apríl , er í fullu fjöri og miðjubaráttan er einnig geysi hörð.

Í næstu viku ráðast svo úrslitin í Maí. Ég var að benda strákunum á bókina “Burn the Fat, Feed the Muscle” sem ég hef verið að lesa undanfarið sem er merkilega illa skrifuð en inniheldur mikinn og þarfan sannleika og vil ég meina að hún sé skyldulesning fyrir hvern þann sem ætlar sér að taka til í björgunarhringnum. 


Vika 19

Posted: May 8th, 2008 | Author: ari.bjornsson | Filed under: Fitness | Tags: , , , , | No Comments »

Fyrsta vika Maí mánaðar er liðin og niðurstöðurnar klárar, ég er að vinna í því að búa til skemmtilegt heildargraf yfir samanlögðu keppnina sem ég mun svo bæta hér við. Einnig er ég kominn með hugmyndir af vefsíðu þar sem við getum skráð mælingarnar okkar o.s.frv. en hvað um það.

Þess má geta að Beggi Reynis er að koma núna inn í keppnina og ef það er einhver þarna úti sem vill vera með þá er það alveg sjálfsagt mál, bara kynna sér keppnina og senda mér svo póst: ari.bjornsson ( at ) gmail.com . Það kemur reyndar ekki fram í lýsingu um keppnina að þáttökugjald er 5.000 ISK og refsigjald fyrir neðsta og næstneðsta sætið í hverjum mánuði er 1.000 og 500. 

Eins og sjá má á grafinu þá hefur Helgi Stud Muffin staðið í stað en ég hef staðfestar heimildir fyrir því að hann er byrjaður í svaðalegu prógrammi sem mun þeyta honum upp stigatöfluna. Í síðustu viku var hann að æfa sporin en frá og með þessari viku mun hann svo taka TURBO! Ég hlakka mikið til að sjá árangurinn hjá kappanum.